Þriðja fréttabréf Smáþjóðaleika 2015

03.03.2015 13:57
Þriðja fréttabréf Smáþjóðaleikanna á íslensku er nú komið út. Það heitir "Fréttir, Smáþjóðaleikar 2015". Stefnt er á að gefa reglulega út fréttabréf á íslensku fram að leikum.

Í fréttabréfinu er farið yfir ýmis atriði sem tengjast leikunum og því sem gerst hefur frá því undirbúningur fyrir leikana hófst.

Hér má sjá fréttabréfið.

Gefin hafa verið út fjögur fréttabréf á ensku, sem heita einfaldlega "News" og fjögur fréttabréf á íslensku fyrir sjálfboðaliða, sem kallast "Smáfréttir". Innihald "News" er fyrst og fremst til upplýsinga fyrir þátttökuþjóðirnar átta og því eru þau á ensku. Innihald Smáfrétta er ætlað sjálfboðaliðum og verða gefin reglulega út fram að leikum, þeim til skemmtunar og upplýsinga.
Til baka