Afsláttur í dagsferðir

07.05.2015 17:31
Allir þátttakendur á Smáþjóðaleikunum 2015 fá afslátt í dagsferðir með Kynnisferðum - Reykjavik Excursions, á meðan á leikunum stendur.

Ef þú ferð á þessa vefsíðu getur þú séð allar dagsferðir sem Kynnisferðir bjóða upp á og fengið sérstakan afslátt vegna Smáþjóðaleikanna 2015.

Síðan er einnig á heimasíðu leikanna hér

Fyrirtækið Reykjavik Excursions - Kynnisferðir var stofnað árið 1968 og hefur síðan verið leiðandi fyrirtæki í skipulagningu hópferða. RE rekur einn stærsta bílaflota landsins. Fyrirtækið skipuleggur meðal annars rútuferðir til og frá Keflavíkurflugvelli, dagsferðir, hópferðir, hvataferðir, rútuleigu, og „Hop on/Hop off“ rútuna í Reykjavík.
Til baka