Ólafur Rafnsson forseti framkvæmdastjórnar Smáþjóðaleika
27.05.2013 02:45
Aðalfundur Smáþjóðaleika og fundur framkæmdastjórnar Smáþjóðaleika voru haldnir á sveitasetri í Luxemborg í dag. Fulltrúar ÍSÍ á aðalfundinum voru Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ og Lárus Blöndal varaforseti ÍSÍ. Fulltrúar ÍSÍ á fundi framkvæmdastjórnar leikanna voru Ólafur Rafnsson forseti, Lárus Blöndal varaforseti og Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri. Á fundinum tók Ólafur við embætti forseta framkvæmdastjórnar Smáþjóðaleikanna og gegnir því fram yfir leikana á Íslandi 2015. Skipulagsnefnd leikanna 2015 hélt kynningu á leikunum 2015, íþróttagreinunum 10 sem keppt verður í, mannvirkjum, landi og þjóð.
Á myndinni eru embættismenn framkvæmdstjórnar ÍSÍ ásamt framkvæmdastjóra ÍSÍ í Luxemborg í morgun.
Til bakaÁ myndinni eru embættismenn framkvæmdstjórnar ÍSÍ ásamt framkvæmdastjóra ÍSÍ í Luxemborg í morgun.