Undirbúningur fyrir Smáþjóðaleikana 2015
29.05.2013 02:42
Ísland verður gestgjafi Smáþjóðaleikanna árið 2015.
Undirbúningur fyrir þá leika er þegar hafinn og á leikunum sem nú standa yfir í Luxemborg eru aðilar á vegum ÍSÍ til að taka út og skoða stærstu þættina í undirbúningi slíkra leika. Í gær fór hópurinn í skoðunarferð um öll mannvirki leikanna ásamt því að skoða matsalinn þar sem allir þátttakendur ásamt sjálfboðaliðum snæða hádegis- og kvöldmat á meðan á leikunum stendur. Í dag hefur svo verið fundað með skipuleggjendum leikanna í Luxemborg og yfirmönnum einstakra málaflokka. Á meðfylgjandi mynd er hópurinn, ásamt Friðriki Einarssyni aðalfararstjóra, Karitas Gunnarsdóttur skrifstofustjóra í mennta- og menningarmálaráðuneytinu og Evu Einarsdóttur borgarfulltrúa og formanni ÍTR, staddur á keppnissvæði strandblaksins.
Til bakaUndirbúningur fyrir þá leika er þegar hafinn og á leikunum sem nú standa yfir í Luxemborg eru aðilar á vegum ÍSÍ til að taka út og skoða stærstu þættina í undirbúningi slíkra leika. Í gær fór hópurinn í skoðunarferð um öll mannvirki leikanna ásamt því að skoða matsalinn þar sem allir þátttakendur ásamt sjálfboðaliðum snæða hádegis- og kvöldmat á meðan á leikunum stendur. Í dag hefur svo verið fundað með skipuleggjendum leikanna í Luxemborg og yfirmönnum einstakra málaflokka. Á meðfylgjandi mynd er hópurinn, ásamt Friðriki Einarssyni aðalfararstjóra, Karitas Gunnarsdóttur skrifstofustjóra í mennta- og menningarmálaráðuneytinu og Evu Einarsdóttur borgarfulltrúa og formanni ÍTR, staddur á keppnissvæði strandblaksins.