Smáþjóðaleikarnir 2015 kynntir
31.05.2013 02:39
Á meðan íslensku þátttakendurnir á Smáþjóðaleikunum hafa gert það gott á keppnisstöðum leikanna þá hefur ÍSÍ staðið fyrir öflugri kynningu á leikunum sem haldnir verða hér á landi árið 2015.
Helga Steinunn Guðmundsdóttir ritari framkvæmdastjórnar ÍSÍ reið á vaðið og hélt kynningu fyrir fulltrúa allra þátttökuþjóðanna á aðalfundi Smáþjóðaleikanna á mánudaginn var. Í vikunni hafa svo starfsmenn ÍSÍ verið með kynningarbása bæði í mannvirkjum leikanna og matsal þátttakenda þar sem fjölbreyttu kynningarefni hefur verið dreift. Margir lögðu leið sína í bás ÍSÍ til að fá upplýsingar um aðstæður á Íslandi, fjarlægðir á milli keppnisstaða, veðurfar og flest það helsta sem leikunum viðkemur.
Á myndinni eru Óskar Örn Guðbrandsson og Halla Kjartansdóttir, starfsmenn ÍSÍ, í kynningarbás ÍSÍ í matsal leikanna.
Til bakaHelga Steinunn Guðmundsdóttir ritari framkvæmdastjórnar ÍSÍ reið á vaðið og hélt kynningu fyrir fulltrúa allra þátttökuþjóðanna á aðalfundi Smáþjóðaleikanna á mánudaginn var. Í vikunni hafa svo starfsmenn ÍSÍ verið með kynningarbása bæði í mannvirkjum leikanna og matsal þátttakenda þar sem fjölbreyttu kynningarefni hefur verið dreift. Margir lögðu leið sína í bás ÍSÍ til að fá upplýsingar um aðstæður á Íslandi, fjarlægðir á milli keppnisstaða, veðurfar og flest það helsta sem leikunum viðkemur.
Á myndinni eru Óskar Örn Guðbrandsson og Halla Kjartansdóttir, starfsmenn ÍSÍ, í kynningarbás ÍSÍ í matsal leikanna.