Andri Stefánsson
Fæðingardagur: 20/10/1972 Starf: Sviðsstjóri Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ
Hlutverk fyrir GSSE: Í undirbúningsnefnd leikanna ásamt því að hafa umsjón með þjónustuþáttum leikanna
Íþróttaferillinn minn:
Lék knattspyrnu og badminton hjá Knattspyrnufélaginu Víkingi í öllum flokkum auk þess að æfa handknattleik í nokkur ár. Bjó um tíma í Danmörku og æfði og þjálfaði badminton þar. Hef verið í Badmintonfélagi Hafnarfjarðar síðustu árin. Keppti fyrir Íslands hönd í badminton á tveimur Eyjaleikum auk þess að keppa með unglingalandsliðum.
Áhugamál:
Fjölskyldan, heimilið og íþróttir almennt. Sérstaklega er það badminton, knattspyrna, golf, og skíði sem fær sinn skerf hvað varðar ástundun.
Uppáhalds íþróttaminningin mín:
Engin ein minning sem stendur upp úr. Það að hafa fengið tækifæri á að upplifa svo margt í gegnum íþróttirnar, saman með sínum bestu vinum, bæði innan vallar sem utan, er það sem er í uppáhaldi hjá mér.
Uppáhalds íþróttaminningin:
Án efa er ein stærsta minningin þegar Ísland vann silfur í handknattleik á Ólympíuleikunum í Peking 2008. Það var ótrúlega gaman að taka þátt í því ferli, allt frá upphafi leika til heimkomu.