Blossi á íþróttaviðburðum

27.04.2015 09:58

Blossi, lukkudýr Smáþjóðaleikanna 2015 hefur verið iðinn við að mæta á hina ýmsu íþróttaviðburði síðastliðnar vikur. 

Blossi mætti á árlega boðsundskeppni grunnskólanna, sem fór fram í síðustu viku. Sundsamband Íslands hélt keppnina í Ásvallalaug í Hafnarfirði í góðu samstarfi við Sundfélag Hafnarfjarðar.

Gífurleg stemning myndaðist í lauginni en ætla má að um 360 börn hafi mætt í laugina ásamt fylgdarfólki. Öll börnin fengu þátttökuverðlaun frá SSÍ að keppni lokinni. Vera Blossa í lauginni vakti athygli og fengu mörg þeirra mynd af sér með Blossa.

Meira um keppnina má sjá á heimasíðu Sundsambands Íslands hér

Blossi mætti einnig á Íslandsmeistaramót karla og kvenna í júdó sem haldið var í Laugardalshöllinni um helgina. 

Meira um Íslandsmótið í júdó má sjá á heimasíðu Júdósamband Íslands hér

Myndir með frétt

Til baka