Blossi heimsótti Vesturbæjarskóla
30.04.2015 17:07
Í dag heimsótti lukkudýr Smáþjóðaleikanna 2015, Blossi, Vesturbæjarskóla, ásamt föruneyti frá ÍSÍ, en 6. bekkur í Vesturbæjarskóla var með sigurnafnið Blossi í nafnasamkeppni um nafn á lukkudýri Smáþjóðaleikanna 2015 sem ÍSÍ efndi til í janúar. Tveir bekkir sendu inn tillögu með sigurnafninu, 6. bekkur í Vesturbæjarskóla og 5.H.G. í Njarðvíkurskóla, og því varð að draga út sigurvegarann. Njarðvíkurskóli var dreginn út með vinningsnafnið Blossi.
Allir nemendur í 6. bekk í Vesturbæjarskóla fengu lítinn Blossa til eignar, sem Blossi sjálfur afhenti þeim ásamt sviðsstjóra Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ, Ragnhildi Skúladóttur, og verkefnastjóra kynningarmála hjá ÍSÍ, Rögnu Ingólfsdóttur. Blossi hitti marga nemendur skólans í dag í frímínútum. Það má með sanni segja að heimsóknin hafi vakið mikla lukku.
Meðfylgjandi eru myndir frá heimsókninni.