Risafloti bíla afhentur ÍSÍ vegna Smáþjóðaleikanna
Bílaumboðið Askja umboðsaðili Mercedes-Benz og Bílaleiga Akureyrar umboðsaðili Europcar á Íslandi eru meðal Gullsamstarfsaðila Smáþjóðaleikanna sem haldnir verða á Íslandi 1.-6. júní. Fyrstu þátttakendur koma til landsins um helgina en um 800 þátttakendur frá níu löndum taka þátt í leikunum sem nú eru haldnir í sextánda sinn.
,,Bílaleiga Akureyrar í samstarfi við Bílaumboðið Öskju hafa tekið að sér að sjá um bílamál leikanna en alls verða notaðir um 70 Mercedes-Benz bifreiðar til að flytja þátttakendur á milli keppnissvæða, hótela, flugvallar og sinna annarri þjónustu sem þörf er á á meðan á leikunum stendur,” segir Steingrímur Birgisson, forstjóri Bílaleigu Akureyrar.
Bifreiðarnar eru af mörgum gerðum Mercedes-Benz allt frá smáum fólksbílum eins og A-Class og B-Class upp í níu manna farþegabíla eins og Vito og V-Class. Þá eru væntanlegir þjóðhöfðingjar frá þátttökuþjóðum, má þar meðal annars nefna Albert Prins af Mónako, og við flutning þeirra eru notaðar Mercedes-Benz viðhafnarbifreiðar.
,,Við erum mjög stolt af því að styðja við þennan stórviðburð sem Smáþjóðaleikarnir eru. Leikarnir eru frábært sameiningartákn smáþjóðanna í Evrópu þar sem þeirra helsta afreksfólk mun etja kappi með íþróttaandann að leiðarljósi. Mercedes-Benz býður upp á gríðarlega breiða línu bíla og því var það auðsótt í samstarfi við þýska lúxusbílaframleiðandann að koma þessu saman,” segir Jón Trausti Ólafsson, forstjóri Bílaumboðsins Öskju.
,,Smáþjóðaleikarnir 2015 eru stór og mikilvægur viðburður og stærsta verkefni sem ÍSÍ hefur tekið að sér. Það er því mikilvægt að fá stuðning frá öflugum fyrirtækjum eins og Öskju og Bílaleigu Akureyrar sem og erlendum stórfyrirtækjum eins og Mercedes-Benz og Europcar," segir Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ.
Myndatexti:
Óskar Örn Guðbrandsson, verkefnastjóri Smáþjóðaleika 2015, Steingrímur Birgisson, forstjóri Bílaleigu Akureyrar, Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ, og Jón Trausti Ólafsson, forstjóri Öskju, við Mercedes-Benz bíla sem notaðir verða á Smáþjóðaleikunum.