Lúxemborg skellti í lás gegn Möltu

03.06.2015 18:49
Lúxemborg átti ekki í teljandi vandræðum með Möltu á öðrum degi körfuknattleikskeppni kvenna á Smáþjóðaleikunum en leiknum lauk 64-42. Lúxemborg gaf tóninn strax með því að skora fyrstu níu stig leiksins. Möltustelpur svöruðu fyrir sig og komust augnablik yfir í öðrum leikhluta, 21-22. Sú forysta entist ekki nema í eina sókn og tímann fram að hálfleik notaði Lúxemborg til að byggja upp 35-24 forskot. 

Eftir það leit liðið aldrei um öxl og Möltu tókst aðeins að skora fimm stig í þriðja leikhluta. Forysta Lúxemborgar var aldrei í hættu í fjórða leikhluta og liðið gat leyft sér að slaka aðeins á síðustu sekúndurnar.

Cathy Schmidt var stigahæst í liði Lúxemborgar með 19 stig. Hjá Möltu skoruðu þær Ashley Vella og Nicola Hendreck sjö stig hvor auk þess sem Vella hirti sjö fráköst. 
Til baka