Úrslit í loftskammbyssu karla

03.06.2015 13:46
Keppni var að ljúka í loftskammbyssu karla í Íþróttahúsi ÍFR í Hátúni en þar stóð Monacobúinn, Boris Jeremenko uppi sem sigurvegari. Jeremenko tókst að komast upp fyrir Ívar Ragnarsson á síðustu skotunum en Ívar hafði verið í forystu megnið af lokakeppninni. Jeremenko skoraði 193,6 stig í lokakeppninni en Ívar 190,7. Ívar hreppti því annað sætið í greininni en Thomas Viderö varð í þriðja sæti með 171,7 stig.
Til baka