Svartfellingar með lið á hærra plani
04.06.2015 18:07
Íslendingar mættu Svartfellingum í blaki kvenna í kvöld. Fyrir leikinn höfðu bæði lið unnið fyrstu tvo leiki sína. Íslendingar á móti Liechtenstein og San Marínó og Svartfellingar unnu San Marínó og Lúxemborg nokkuð auðveldlega. Það var því búist við erfiðum leik í kvöld.
Íslensku stelpurnar byrjuðu vel og voru yfir 8-7 þegar flautað var í fyrsta tæknihlé. Þá small sóknarleikurinn hjá Svartfellingum sem íslenska liðið átti fá svör við. Í öðru tæknihléi voru Svartfellingar yfir 16-10. Fyrirliði Svartfellinga, Tatjana Bokan, gerði íslensku stelpunum lífið leitt með sóknum úr afturlínu sem smullu í gólfið trekk í trekk. Hrinan endaði 25-13 fyrir Svartfellingum.
Svartfellingar voru yfir 8-1 í fyrsta tæknihléi annarrar hrinu. Þær stungu íslensku stelpurnar af og unnu hrinuna 25-13, líkt og fyrstu hrinu. Leikmenn íslenska liðsins komu ákveðnari til leiks í þriðju hrinu og var jafnt 2-2 og 3-3. Í tæknihléi voru Svartfellingar 8-5 yfir. Íslenska liðið átti ágætis spretti, en há- og lágvarnir Svartfellinga hleyptu engu í gólfið. Svartfellingar unnu þriðju hrinu 25-18 og leikinn þar með 3-0.
Stigahæst í íslenska liðinu var fyrirliðinn Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir, með 8 stig. Fyrirliði Svartfellinga, Tatjana Bokan var með 19 stig.
Næsti leikur: 20:30- Ísland - Mónakó (kk)