Nýtt mótsmet í Skeet

05.06.2015 15:45

Keppni í Skeet á Smáþjóðaleikunum lauk í Álfsnesi í dag eftir harða keppni milli Arnar Valdimarssonar, Skotfélagi Reykjavíkur, og Georgios Kazakos frá Kýpur. Kýpverjinn hafði betur á lokaskotunum og Örn varð því að sætta sig við 2. sætið. Ekki skemmdi fyrir að hann setti glæsilegt nýtt Íslandsmet í forkeppninni þar sem hann skaut 121 dúfu. Landi Kazakos, kýpverjinn Stefanos Nikolidis, setti nýtt Smáþjóðaleikamet þegar hann skaut 123 dúfur í forkeppninni, en Nikolidis varð að sætta sig við 3. sætið í lokakeppninni.

Þá er keppni í skotíþróttum lokið á Smáþjóðaleikunum 2015.
Til baka