Kylfingar með gullverðlaun

06.06.2015 18:13

Íslenska karlalandsliðið sigraði með yfirburðum í liðakeppninni á Smáþjóðaleikunum í golfi á Korpúlfsstaðavelli. Ísland lék samtals á 14 höggum undir pari vallar og var 31 höggum betri en Malta sem varð í öðru sæti. Mónakó endaði í þriðja sæti á +29 samtals.

Kristján Þór Einarsson sigraði í einstaklingskeppninni á -6 samtals en hann lék lokahringinn á 77 höggum í dag, eftir að hafa sett vallarmet í gær á 64 höggum. Sandro Piaget frá Mónakó varð annar á -2 samtals og Haraldur Franklín Magnús varð þriðji á pari vallar samtals. Andri Þór Björnsson varð fjórði á +2 samtals.

Lokastaðan hjá efstu kylfingunum í einstaklingskeppninni:

Kristján Þór Einarsson, Ísland 278 högg (68-69-64-77) -6
Sandro Piaget, Mónakó 282 högg (73-71-66-72) -2
Haraldur Franklín Magnús, Ísland 284 högg (68-72-71-73) par
Andri Þór Björnsson, Ísland 286 högg (72-70-73-71) +2
Kevin Rigaill Esteve, Andorra 291 högg (71-72-72-76) +7
Andrew Borg, Malta 294 högg (74-70-75-75) +10
Daniel Holland, Malta 302 högg (72-70-80-80) +18

Lokastaðan í liðakeppninni:
Ísland, 554 högg -14
Malta, 585 högg +17
Mónakó, 597 högg +29
Andorra, 606 högg +38
San Marino, 608 högg +40
Lúxemborg, 621 högg +53
Liechtenstein, 649 högg +81

Til baka