Aðalfundur Smáþjóðaleikanna er um helgina

16.05.2014 12:31
Í gær mættu til landsins fulltrúar frá öllum þeim þjóðum sem taka þátt í Smáþjóðaleikunum á Íslandi 1.- 6. júní 2015. Alls eru níu þjóðir sem taka þátt í leikunum en það eru Andorra, Kýpur, Liechtenstein, Lúxemborg, Malta, Mónakó, San Marínó, Svartfjallaland og Ísland. Í dag, þann 16. maí verður haldinn fundur Tækninefndar Smáþjóðaleikanna þar sem er ítarlega farið yfir öll þau atriði er lúta að keppnisgreinunum. Keppt verður í blaki, borðtennis, frjálsíþróttum, golfi, júdó, körfuknattleik, sundi, strandblaki, tennis, skotfimi og fimleikum. Á leikunum á næsta ári verður í fyrsta sinn keppt í golfi.

Farið verður í skoðunarferð í öll mannvirki sem notuð verða á leikunum og hótel og aðstæður skoðaðar. Aðalvettvangur leikanna verður í Laugardalnum, með öllum þeim íþróttamannvirkjum sem þar eru, en þau hótel sem notuð verða fyrir þátttakendur eru flest í göngufæri við Laugardalinn. 

Fésbókarsíða leikanna er www.facebook.com/gsse2015
Til baka