Körfuknattleiksstrákarnir með silfur
06.06.2015 19:07
Síðasta keppnisdegi Smáþjóðaleikanna lauk í dag með keppni í körfuknattleik karla, Ísland tók á móti Svartfjallalandi. Mikil spenna ríkti fyrir leiknum og höllin nánast full af áhorfendum. Lið Svartfjallalands var einfaldlega of sterkt fyrir Íslendingana. Leikurinn fór 102-84. Hlynur Bæringsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í körfuknattleik, barðist vel í úrslitaleiknum gegn Svartfjallaland í dag, með 19 stig og 5 fráköst.
Lúxemborg hreppti bronsverðlaun í karlaflokki eftir 93-79 sigur á Andorra.