Fyrsta fréttabréf Smáþjóðaleika

06.01.2015 10:47

Fyrsta fréttabréf Smáþjóðaleikanna á íslensku er nú komið út. Það heitir "Fréttir, Smáþjóðaleikar 2015". Stefnt er á að gefa reglulega út fréttabréf á íslensku fram að leikum.

Í fréttabréfinu er farið yfir ýmis atriði sem tengjast leikunum og því sem gerst hefur frá því undirbúningur fyrir leikana hófst snemma árs árið 2013. 

Hér má sjá fréttabréfið.

 

Gefin hafa verið út fjögur fréttabréf á ensku, sem heita einfaldlega "News" og tvö fréttabréf á íslensku fyrir sjálfboðaliða, sem kallast "Smáfréttir". Innihald "News" er fyrst og fremst til upplýsinga fyrir þátttökuþjóðirnar átta og því eru þau á ensku. Innihald Smáfrétta er ætlað sjálfboðaliðum og verða gefin reglulega út fram að leikum, þeim til skemmtunar og upplýsinga. 

Hér neðst á síðunni má sjá ensku útgáfuna.

Til baka