Frjálsíþróttameistarinn Sveinbjörg í viðtali

07.08.2014 09:35

Sveinbjörg Zophoníasdóttir - Frjálsíþróttir/Sjöþraut

         Fæðingardagur: 27/04/1992         Hæð: 176         Aldur: 22


Helstu afrek ferilsins

Ég trúi því að ég hafi ekki enn unnið mitt helsta íþróttaafrek en...

Tvöfaldur Norðurlandameistari í langstökki.
Tvöfaldur Norðurlandameistari í sjöþraut.
Annar besti árangur íslenskrar konu í sjöþraut.

Hef náð lágmörkum og keppt á stærstu unglingamótum í heimi, t.d.:

  • 2009: Heimsmeistaramót U18.
  • 2010: Heimsmeistaramót U20.
  • 2011: Evrópumeistaramót U20. 
  • 2013: Evrópumeistaramót U22.

 

Upphaf íþróttaferilsins:

Þegar ég var um fimm ára prufaði ég frjálsar í fyrsta sinn, en fór ekki að æfa af krafti fyrr en um fermingu. 

 

Markmið:

Að komast inn á helstu stórmótin í frjálsum, þ.á.m. Ólympíuleikana í RÍÓ 2016.

 

Önnur áhugamál:

Ferðast, innanlands sem utan. Er líka í fullu námi á veturna. Svo finnst mér gaman að hitta góða vini, borða góðan mat og slaka á.


Uppáhalds íþróttaminningin mín:

Þegar ég stökk í fyrsta sinn yfir 6 metra í langstökki í Ísrael árið 2010. Síðan var rosalega gaman að vinna Norðurlandameistaratitilinn núna í vor með mikilli bætingu í sjöþrautinni.

Uppáhalds íþróttaminningin: 

Það var mjög gaman að fylgjast með Anítu ná í alla stóru titlana á síðasta ári, heims- og evrópumeistari, það var eftirminnilegt og maður fylltist stolti eins og alltaf þegar hún stígur á brautina.


Myndir með frétt

Til baka